Upplýsingar úr sakaskrá
Hér má nálgast leiðbeiningar og eyðublöð þegar óskað er eftir sakarskrárheimild.
Hvers vegna þarf að skila inn sakavottorðsheimild?
Í íþróttalögum og æskulýðslögum kemur fram að það er óheimilt að ráða til starfa aðila sem hafa hlotið dóm gegn ávana- og fíkniefnalögum síðastliðin fimm ár eða dóm gegn kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga. Í sömu lögum er þessum félögum veitt heimild til þess að leita upplýsinga í sakaskrám þeirra sem félögin mynda ráðningarsamband við sem og sjálfboðaliða sem sinna börnum og ungmennum.
Hverjir eiga að skila þessu inn?
Allt starfsfólk sem félagið er með ráðningarsamband við og koma á einhvern hátt nálægt börnum og ungmennum í starfi félagsins. Það sama gildir um sjálfboðaliða sem vinna með börnum og ungmennum.
Til að opna skjölin smellið á táknin.
Leiðbeiningar. Öflun upplýsinga úr sakaskrá
Eyðublað. Aukin heimild. Sakaskrárheimild fyrir íþróttafélag
Eyðublað. Aukin heimild. Sakaskrárheimild fyrir æskulýðsfélag
Undirskriftablað ábyrgðaraðila félags og listi
DÆMI. Umsókn um upplýsingar úr sakaskrá